Góð þátttaka er á fyrsta móti tímabilsins á Íslandsbankamótaröð unglinga sem fram fer á Strandarvelli hjá Golfklúbbnum Hellu, GHR. Mótið hefst föstudaginn 25. maí og lýkur sunnudaginn 27. maí.
Alls eru 130 keppendur skráðir til leiks. Keppt er í fjórum aldursflokkum hjá báðum kynjum – 14 ára og yngri, 15-16 ára, 17-18 ára og 19-21 árs.
Keppnisdagarnir eru þrír hjá 19-21 árs flokknum en keppni hefst hjá þeim flokki föstudaginn 25. maí.
Keppendur eru alls 130 eins og áður segir og koma þeir frá 10 klúbbum. Flestir eru frá GKG eða 37 og þar á eftir kemur GR með 27 keppendur.
Fjöldi keppenda skiptist þannig í aldursflokkana:
14 ára og yngri
kk = 29
kvk =13
15-16 ára
kk = 38
kvk = 11
17-18 ára
kk =28
kvk= 6
19-21 árs
kk = 5
kvk = 0
Meðalforgjöfin í mótinu er 11,6 en Hulda Clara Gestsdóttir GKG er með lægstu forgjöfina í kvennaflokki eða 2 og í karlaflokki er Dagbjartur Sigurbrandsson GR með lægstu forgjöfina eða -0.9