Það styttist í að laxveiðin byrji fyrir alvöru. Þjórsá er að opna eftir fáa daga og síðan Straumarnir, Norðurá og Blanda. Og það hafa sést laxar í Leirá og í gær í Laxá í Kjós en erfitt var að sjá í Norðurá í Borgarfirði áin var lituð aðeins og vatnsmikil en laxinn er örugglega kominn í hana.
,,Jú, ég sá laxa um daginn en síðan varð Laxá í Kjós að stórfljóti og ekkert sást meira. Þetta hefur skánað,“ sagði Bubbi Morhtens en hann hefur núna í nokkur ár séð fyrstu laxana í Laxá Í Kjós. Kíkt var líka í Laxá í Leirársveit og gott ef sæmilegur lax lá ekki rétt fyrir neðan fossinn.
María Gunnarsdóttir tók á myndina í fallegu veðri við Norðurá um helgina.