fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Ályktun um fiskeldi

Gunnar Bender
Mánudaginn 2. júlí 2018 13:53

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðalfundur í Veiðifélagi Breiðdæla haldinn í Eyjum í Breiðdal 29. júní 2018 mótmælir harðlega laxeldi í opnum sjókvíum við strendur landsins og skorar á stjórnvöld að grípa nú þegar til viðeigandi aðgerða sem hafa að leiðarljósi náttúruvernd til heilla fyrir framtíð þjóðar.

Í Noregi fór nýlega fram uppboð á laxeldisleyfum. Þar seldist leyfið fyrir eitt laxeldistonn á tæpar 2.6 milljónir króna sem renna til ríkis og viðkomandi sveitarfélags. Samkvæmt þessu kostar leyfi fyrir 6000 tonna laxeldi fyrir Laxa ehf. í Reyðarfirði 15.4 milljarða í Noregi og sama á við um Fiskeldi Austfjarða ehf. í Berufirði. Hér á landi eru sömu leyfi nánast ókeypis.

Þessar staðreyndir sýna svart á hvítu hvernig Íslendingar láta norska eldisrisa hafa sig að féþúfu og ætla að fórna villtum laxastofnum til viðbótar sem þykja þó einstæðir og á heimsvísu.

Hvað verður um orðspor Íslendinga á alþjóðavettvangi í umhverfismálum í ljósi slíkra tíðinda? Við athugun hefur komið í ljós, að eldisiðjan í Berufirði á vegum Fiskeldis Austfjarða ehf. hefur ekki enn öðlast stöðvarskírteini og starfar í skjóli undanþágu skv. gömlum reglum, m.a. um búnað og umgjörð. Þá er hvergi getið um heimildir í leyfum fyrir sömu eldisiðju til þess að nýta frjóan fisk af erlendum uppruna til eldisins eins og skylt er skv. lögum og reglum.

Sömuleiðis finnast hvergi í útgefnum leyfum fyrir laxeldisiðjuna í Berufirði heimildir til að losa fosfór í sjóinn sem er uppistaðan í spillandi úrgangi frá eldinu. Þá hefur sama eldisiðja aldrei farið í umhverfismat.

Af þessu má ljóst vera að eldisiðjan í Berufirði er lögleysa, og trúverðugleiki stofnanna, sem ábyrgð bera á útgáfu leyfa og eftirliti, er í molum og geta því tæpast talist marktækar. Alls staðar í veröldinni, þar sem eldi fer fram í opnum sjókvíum, sleppur fiskur og hefur skaðvænleg áhrif með erfðablöndun, mengun náttúrunnar, lúsafári og sjúkdómasmiti. Það hefur reynslan líka staðfest á Íslandi. Nú berast fréttir af lúsafári í eldinu og veldur skaða á lífríkinu. Ólíðandi er að opinber yfirvöld heimili að hella sterku eitri í sjóinn í baráttu við lúsina. Fisksjúkdómanefnd mælir gegn slíkum aðferðum.

Þá hefur Erfðanefnd landbúnaðarins varað við skaðvænlegum afleiðingum af fiskeldi í opnum sjókvíum „og ráðleggur stjórnvöldum að stöðva útgáfu leyfa til laxeldis í sjókvíum“. Í Noregi og víðar í nágrannalöndum eru nú settar upp metnaðarfullar áætlanir í ljósi reynslunnar, að allt eldi fari í lokuð kerfi. Við krefjumst þess, að hér á landi verði það gert líka.

Nú hafa verið gefin út leyfi fyrir 12 þúsund tonnum til eldis af laxi og regnbogasilungi í opnum sjókvíum á Austjörðum. En sótt hefur verið um viðbótarleyfi fyrir 54 þúsund tonna eldi í austfirskum fjörðum. Hámark eldis í opnum sjókvíum samkvæmt útgefnu áhættumati Hafrannsóknarstofnunnar fyrir Austfirði eru 21 þúsund tonn. Við vörum við þessari ógn gagnvart lífríkinu og krefjumst, að allt eldi fari fram í lokuðum kerfum og bannað verði að nota frjóan fisk til eldis af útlenskum uppruna. Fiskeldi í opnum sjókvíum við strendur landsins með frjóum fiski af norskum uppruna eru hamfarir gegn náttúrunni og íslenskum hagsmunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

De Bruyne setti met sem hann hefði heldur viljað sleppa í gær

De Bruyne setti met sem hann hefði heldur viljað sleppa í gær
Fókus
Fyrir 10 klukkutímum

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

Styttist í barnamenningarhátíð í Reykjavík – Vegleg dagskrá og börnin í aðalhlutverki

Styttist í barnamenningarhátíð í Reykjavík – Vegleg dagskrá og börnin í aðalhlutverki
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Píratar vilja Útlendingastofnun feiga

Píratar vilja Útlendingastofnun feiga
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Kostar sitt að kúka í Lystigarðinum – Akureyrarbær tvöfaldar verðmiðann

Kostar sitt að kúka í Lystigarðinum – Akureyrarbær tvöfaldar verðmiðann
Eyjan
Fyrir 14 klukkutímum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn