,,Þetta var ofsalega gaman en ég fékk tvö laxa á fluguna,“ sagði Kristján Finnur Sæmundsson er við spurðum veiðitúrinn í Norðurá í Borgarfirði sem hann fór í á dögunum. Þar veiddi hann fyrsta flugulaxinn sinn og örugglega ekki þann síðasta á fluguna Kolskegg.
,,Það var mikið vatn í ánni en sá fyrsti veiddist á Bryggjunum og ég var með hann á í einar 10 mínútur. Það er óhætt að segja að sú viðureign hafi verið mjög krefjandi En áin var á þessum tíma í 30 rúmmetrum. Rétt áður veiddi annar veiðimaður í hollinu 93 centimera fisk og undir lokin náði ég öðrum laxi í Stekknum en hann tók á síðustu mínútunni. Þetta var feiknalega gaman,“ sagði Kristján Finnur í lokin.
Veiðin í Norðurá hefur verið góð og ennfremur í Þverá þar sem einn dagurinn gaf um 50 laxa.