,,Já, það komu þrír laxar í gær í Leirá og það er gott, en vatnið er frábært og fiskurinn greinilega að mæta,“ sagði Stefán Sigurðsson er við spurðum um Leirá en laxinn virðist ætla að mæta snemma í hana í ár og núna þegar hafa veiðst nokkrir laxar.
Vatnið er frábært í ánni og veiðimenn voru við brúna í gær þegar okkur bar að garði. Fiskurinn var greinilega að mæta og á myndinni sést veiðimaður takast á við lax í ánni og hafði betur á fluguna.