,,Það er kalt hérna við Ytri Rangá og það vantar hlýindi til að fiskurinn taki betur en það veiddust 18 laxar í dag,“ sagði Jóhannes Hinriksson við Ytri Rangá í stuttu spjalli við Veiðipressuna.
,,Það eru komnir yfir 400 laxar en fiskurinn tekur grannt í þessum kulda, mikið rok og margir fóru af í dag. En það er mikið af fiski og verður flott þegar það hlýnar,“ sagði Jóhannes ennfremur.
Mynd. Lax kominn á land í Ytri Rangá fyrir fáum dögum.