Síðastliðin 10 ár hafa feðgarnir Hjörtur Oddsson, Hjalti, Pétur og Atli Hjartarsynir farið saman í laxveiði um miðjan júlímánuð í Rangárnar.
Þetta árið var níu ára sonur Hjalta búinn að tala mikið um veiði yfir veturinn og ákveðið var að taka hann með í veiði. Feðgarnir renndu niður Veiðiport til Tomma og sóttu veiðigræjur og þaðan var lagt á stað í fyrstu laxveiði Sindra Snæ.
Þrír ættliðir að gera það sem feðgar gera best af öllum. Að veiða. Ekki skemmir fyrir að fyrsta stöngin sem var prófuð var 13 feta Mackenzie tvíhenda. Nú er bara að landa þeim stóra!
Mynd. Klár í veiðina.