,,Við skruppum í vikunni í dagsferð nokkrir félagar í Veiðivötn,“ sagði Jóhann Bragi um ferðina í Veiðivötnin.
,,Við náðum nokkrum fiskum og þar á meðal þessum sem myndin er af. Eftir tíðindalítinn klukkutíma í Fossvatni l stóra var skipt yfir í bleikan Dýrbít og þá tók hann, djúpt niðri. Hann reyndist 5 pund (56 cm) Þegar magainnihald fisksins var skoðað reyndist hann stútfullur af kuðungi, þannig það er greinilega nóg æti í boði,“ sagði Jóhann Bragi ennfremur.
Veiðin hefur verið góð í Veiðivötnum og komnir yfir 10 þúsund fiskar.