Svo virðist sem ánamaðkurinn sé loksins að láta sjá sig eftir erfiða tíma fyrir suma veiðimenn. Það hefur aðeins hlýnað og þá hefur maðkurinn komið upp í ríkari mæli en hann er dýr ennþá.
Laxamaðkurinn er á 80 til 150 krónur og silungamaðkur sást á 80 krónur í gær.
,,Jú, ég á maðka en hann hefur verið fljótur að fara,“ sagði maðkasali í gær um stöðuna. Og annar týndi eftir pöntun daginn áður.
Maðkurinn er allavega kominn upp, bara að ná honum, það er heila málið.