,,Við vorum að ljúka veiði í Þverá í Fljótshlíð og í heildina gekk vel hjá okkur,“ sagði Jón Ingi Sveinsson en veiðin þar hefur öll verið að koma til síðustu daga.
,,Við fengum 12 laxa og stærsti laxinn var 86 cm. Það var fiskur að ganga og veiðifélaginn missti fimm laxa neðarlega í ánni. Þetta var flottur veiðitúr,“ sagði Jón Ingi ennfremur.
Mynd. Jón Ingi Sveinsson með flottan lax úr Þverá í Fljótshlíð.