Veiðifréttir úr Kleifarvatni í sumar hafa verið fáar en eitthvað hefur samt veiðst. Þegar rennt var við vatnið fyrir skömmu voru nokkrir að veiða og einn með silung. En síðan er liðin nokkur tími.
Christofer Róbert Berry 4 ára veiddi þennan fisk í Kleifarvatni fyrir skömmu, þessa flottu bleikju. Og hann var ánægður með fiskinn sinn. Hann á mynd dagsins hjá okkur.