fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024

Veiðisafnið á Stokkseyri

Gunnar Bender
Föstudaginn 3. ágúst 2018 13:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veiðisafnið er einstakt á landsvísu en hvergi á Íslandi er hægt að sjá jafn fjölbreytt úrval uppstoppaðra veiðidýra, skotvopna og veiðitengdra muna en hér ásamt því að fræðast um veiðidýr, skotvopn, veiðar og náttúruvernd.

,,Hér eru til sýnis byssur frá Veiðisafninu og skotvopn úr einkasöfnum m.a. annars frá Sverri Scheving Thorsteinssyni, Sigurði Ásgeirssyni, Einari frá Þverá, Sigurfinni Jónssyni, Sigmari Haukssyni og fyrrverandi veiðistjóra Sveini Einarssyni og fjölmörgum öðrum veiðimönnum að ógleymdum Drífu-haglabyssunum frá Jóni Björnssyni heitnum byssusmið frá Dalvík,”  segir Páll Reynisson í samtali  við Veiðipressuna en margir veiðimenn hafa skoðað safnið á Stokkseyri í þau 14 ár sem hefur verið opið.

,,Einnig er hér að finna skotfæraverkstæði þar sem sýnd eru tæki til endurhleðslu skotfæra. Mörg dýr eru uppsett hér í heilu lagi, m.a. strútur og krókódíll og einnig er uppsett ljón og zebrahestar, gíraffi, hreindýr, apar, selir, bjarndýr og sauðnaut eru hér ásamt fjölda annara dýra en uppistaða safnsins eru veiðitengdir munir, skotvopn og uppstoppuð veiðidýr. Jafnframt eru hér til sýnis munir frá Náttúrufræðistofnun Íslands sem Veiðisafnið hefur til sýningar samkvæmt sérstökum samningi,“ segir Páll Reynisson

Alla tíð hefur verið tekið á móti stórum sem litlum hópum, veiðiklúbbum, félögum, fjölskyldum, jafnt og einstaklingum sem eiga leið hjá á auglýstum sýningartíma, eða vilja panta einkaheimsóknir, þar sem safnaleiðsögn er ítarlegri og tímasetningar ákveðnar fyrirfram.

Á heimasíðu safnsins www.veidisafnid.is má einnig finna upplýsingar um Drífuvinafélagið sem stofnað var 12.mars 2005. Veiðisafnið er opið alla dag 11:00 – 18:00  yfir sumartímann og sjón er sögu ríkari.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Samtal Liverpool við Slot virkt

Samtal Liverpool við Slot virkt
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Villa staðfestir gleðitíðindin

Villa staðfestir gleðitíðindin
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Sjáðu athyglisvert myndband sem Óli Kalli birti – „Bara ef ég fæ að vera með Gylfa“

Sjáðu athyglisvert myndband sem Óli Kalli birti – „Bara ef ég fæ að vera með Gylfa“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Íhuga að lögsækja Gary Neville fyrir þessi ummæli

Íhuga að lögsækja Gary Neville fyrir þessi ummæli
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Sigmar harðorður um stöðuna hér á landi – „Þetta er hálf­gerð sturlun“

Sigmar harðorður um stöðuna hér á landi – „Þetta er hálf­gerð sturlun“
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi