,,Þetta var frábært en áin er full af fiski,“ sagði veiðimaður sem var að koma úr Eystri Rangá.
Áin er komin í efsta sætið en þar hafa veiðst 2651 laxar. Eystri Rangá er í öðru sæti með 2288 laxa og svo Þverá í Borgarfirði með 2202 laxa í þriðja sætinu.
,,Það eru komnir 2202 laxar,“ sagði Aðalsteinn Pétursson við Þverá í gærkveldi en þar hefur verið flott veiði í allt sumar. 1863 laxar hafa veiðst í Miðfjarðará sem veður að teljast gott á norðurlandi þar sem smálaxinn vantar. Í Norðurá í Borgarfirði hafa veiðst 1455 laxar.
Veiðin er allt í lagi þessa dagana, smálaxinn hefur svikið fyrir norðan en hann kemur, kannski ekki alveg i sumar.
Mynd. Barátta við lax í Þjórsá en áin er komin með næstum 1100 laxa.