,,Þetta er búið að vera erfitt sumar fyrir maðkveiðimenn að fá maðkinn. Það er svo kalt á nóttinni og af þeim sökum kemur hann svona lítið upp,“ sagði maðkasali og það eru orð að sönnu.
Verðið á maðknum hefur farið upp í hæstu hæðir. 200-220 krónur þegar dýrast var en núna eru maðkurinn á kringum 100 kallinn og silungamaðkurinn á 75 til 80 kall.
Aðeins hefur gengið betur fyrir maðkveiðimenn að fá maðk en samt kostar hann ennþá töluvert.