,,Við fengum fimm gæsir félagarnir upp á Kjöl og það voru margir að skjóta í kringum okkur, heyrðum hvelli um allt,“ sagði Kári Páll Önnuson sem var að koma af gæsaveiði á fyrstu degi sem mátti veiða.
,,Þetta var bara fínt en svo við erum að fara á hreindýr og til gæsa í byrjun september. Það verður bara gaman og mikil tilhlökkun,“ sagði Kári Páll ennfremur.
Margir fóru að skjóta fyrstu dagana sem mátti fara á gæsina og fengu sumir hverjir í soðið. Gæsin er ennþá langt upp á heiðum og kemur ekki niður fyrr en kólnar eitthvað verulega.
Mynd. Kári Páll Önnuson með gæs.