Það er hefur aðeins dregið úr veiðinni, fiskurinn verður tregari með hverjum deginum. En Eystri Rangá er örugg á veiðitoppnum þetta árið og er núna komin með 3244 laxa, síðan kemur Ytri Rangá með 2774 laxa. Þverá í Borgarfirði er í þriðja sætinu með 2369 laxa, síðan Miðfjarðará með 2201 lax og Norðurá með 1500 laxa.
En veiðin heldur áfram og veiðimenn eru að að reyna víða en fiskurinn mætti taka betur. En það góða er að það er spáð rigningu næstu daga og það gæti hleypt lífi í veiðina.