,,Veiðin gengur rólega núna en bleikjunni hefur fækkað verulega. Hún er kominn upp í Eyjafjarðarána,“ sögðu ungir veiðimenn sem reyndu við Pollinn á Akureyri í gær, en voru samt búnir að fá nokkra kola sem voru notaðir í beitu.
,,Við settum i önd tvisvar áðan. Við erum alltaf að setja i hana hérna en þetta er skemmtilegt,“ sögðu veiðimennirnir sem héldu áfram að veiða. Þeir sem voru með græjurnar í lagiog hinir héldu áfram að laga þær.
,,Það er búin að vera flott veiði í Eyjafjarðará,“ sagði Högni Harðarson veiðimaður sem við hittum í Jólagarðinum og víða um Eyjafjarðará stóðu veiðimenn í ströngu við veiðiskapinn. Bleikjan var við.