,,Lokatölurnar voru að koma úr Breiðdalsá sem endaði að lokum endaði í 110 löxum, en voru 106 í fyrra,“ sagði Þröstur Elliðason er við spurðum um lokatölur hjá honum þetta árið í veiðinni.
,,Jökla endaði í 529 löxum og veiðin var góð eftir að yfirfallið kom á í hliðaránum. Hrútafjarðará endaði í 380 löxum þetta árið,“ sagði Þröstur ennfremur.
Mynd. Boggi Tona með 100 sentimetra bolta í Jöklu á Blöndubreiðunni undir það síðasta. Mynd Helgi