,,Ég fékk sjö fugla í Bláhæðinni á Holtavöruheiðinni á föstudaginn, bara flott,“ sagði Karl Hallur Sveinsson sem var á rjúpu ásamt fleirum um um helgina. En margir fóru á rjúpu víða um land og veiðin var misjöfn víða. Margir fengu eflaust eitthvað í jólamatinn.
,,Við vorum neðar á Holtavörðuheiðinni á föstudaginn og fengum nokkrar rjúpur,“ sagði Ingólfur Kolbeinsson sem var líka á heiðinni.
En veiðimenn fóru víða og veðurfarið var ekkert sérstakt. Rok og rigning og sumir fóru meira að segja heim á laugardaginn og slepptu sunnudaginn eftir mikið hvassviðri á laugardeginum og endalaust regn.
Mynd. Karl Hallur Sveinsson með rjúpurnar á Holtavörðu heiðinni um helgina.