,,Óvenjulegri rjúpnaveiðitímabili er lokið. Ég fékk í jólamatinn en ekkert meira, alls ekki,, sagði skotveiðimaður sem fór á fjall um helgina. Hann fékk tvær rjúpur og bætti við. ,,Það var nánast snjólaust á fjöllum. Þetta er vægast sagt mjög skrítið veðurfar,“ sagði veiðimaðurinn ennfremur.
Það er margt til í þessu, snjórinn er enginn orðinn sumstaðar á fjöllum. Holtavörðuheiðin er að vera auð, eftir að hlýna tók í síðustu viku. En erfitt er að henda reiður á fjölda skotnar rjúpna á þessu tímabili. Í fyrra voru þær 45 þúsund og árið áður næstum 40 þúsund. Hver staðan verður í ár er erfitt að segja til um, kannski 40 þúsund eða meira. Það ætti að liggja fyrir fljótlega.
Mynd. Það var ekki mikil snjór í kringum Snjóföll á Holtavörðuheiði um helgina eins og þessi mynd sýnir glöggt. Mynd María Gunnarsdóttir.