Fish Partner hefur stofnað Íslensku fluguveiðiakademíuna. Akademían er fræðslumiðstöð sem hefur það markmið að miðla þekkingu og reynslu til áhugamanna um veiði. Markmiðin eru einnig að auka nýliðun í fluguveiði með áherslu á börn og ungmenni og hópa sem eru í minnihluta í sportinu.
Stofnun Akademíunnar er svar eigenda Fish Partner við lítilli nýliðun á undanförnum árum og takmörkuðu framboði af veiðitengdri fræðslu hér á landi.
,,Þetta eru stórtíndi í veiðiheiminum,” sagði Gunnar Örn Petersen í samtali við Veiðipressuna og það eru orð að sönnu og verður gaman að fylgjast með þessu næstu missiri.
Kjarnastarfsemi Akademíunnar er námskeiðahald og fyrirlestrar. Nú þegar liggur fyrir þétt dagskrá af námskeiðum og fyrirlestrum í vetur og eru þó nokkur til viðbótar í pípunum. Akademían er í samstarfi við Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar.
Af námskeiðum á dagskránni má nefna: