Til eru heimildir að sumarið 1936 hafi árnar verið leigðar Englendingum fyrir 1000 kr. Hér átt við Hrútafjarða en það er um haustið 1937 að gerður er samningur við Englendinginn R.N Stewart til tíu ára. Þetta kemur fram í bókinni Genginn ævivegur eftir Gunnar Sæmundsson í Hrútatungu, sem var að koma út fyrir skömmu og hefur bókinni verið vel tekið. Enda margt fróðlegt í henni af sveita lífinu í Hrútafirði.
En þar sem fram kemur er að aðeins fjórir leigutakar hafi haft ána á leigu síðan 1937 og verður það að teljast merkilegt öll þessi ár. Svo leigði Gísli Ásmundsson og Sveinn Kjarval ána en svo kom Sverrir Hermannsson með Gísla og leigja ána. Haustið 2001 er gengið til samstarfs við Þröst Elliðason og Veiðiþjónusta Strengi sem ennþá leigir ána og er ekkert á förum af bökkum Hrútafjarðaár.
Mynd. Elías Pétur kíkir eftir laxi í Hrútafjarðará. Mynd G.Bender