Veiðikortið hefur gert samkomulag við veiðiréttarhafa Meðalfellsvatns um að handhafar Veiðikortsins 2018 geti veitt í Meðalfellsvatni á komandi sumri..
Á sama tíma mun ekki vera hægt að kaupa önnur sumarkort í vatnið önnur en Veiðikortið.
Vatnið verður opnað fyrir veiðimönnum Sumardaginn fyrsta, sem er 19. apríl n.k. eða á fimmtudaginn í næstu viku.
Þetta er eflaust mikil gleðitíðindi fyrir aðdáendur vatnsins að það sé komið aftur í kortið en Meðalfellsvatn hefur verið mjög vinsælt veiðivatn í gegnum árin.
Þess ber að geta að upplýsingar og reglur um veiði á svæðinu verður aðeins á vef okkar þar sem búið er að prenta bæklinginn fyrir 2018.
Við hvetjum veiðimenn til að kynna sér veiðireglur við vatnið áður en haldið er af stað til veiða.
Mynd. Fallegur fiskur úr Meðalfellsvatni. Mynd G.Bender