,,Þetta er tíminn í Elliðaánum, hann gæti verið mættur en vatnið er kannski heldur mikið til að sjá, það minnkar,, sagði einn af þeim sem alltaf er að rýna í vatnið í ánum á þessum árstíma, þegar fiskurinn er á leiðinni eða kominn.
Einhverjir dagar eru síðan lax sást á ferðinni um Seleyrina við Borgarnes en sá fiskurinn var fleygiferð og stoppaði ekki neitt, horfði hvorki til hægri né vinstri.
Vatnið er gott í Elliðaánum þessa dagana, einn og einn fugl á flugi en laxinn sést ekki ennþá. Hann getur komið hvenær sem er ef hann er ekki mættur. Einn vænn urriði sást skjótast í fossinum og annar smærri fylgdi á eftir. En enginn var að bíða eftir þeim, heldur allir eftir laxinum. Svona er það bara þessa dagana, hann er allavega á leiðinni.
Mynd. Kíkt eftir fiski í Elliðaánum í gær en enginn lax sást, bara urriðar. Mynd María Gunnarsdóttir.