Veiðin fer vel af stað á ósasvæði Laxár á Ásum. Laxfiskarnir eru vel haldnir og stórir. Óli Jón Hertervig og félagi hans voru við veiðar á ósasvæði Laxár um síðustu helgi. Þeir fengu væna fiska, alls 31 og þeir tveir stærstu voru sjóbirtingar 79 og 82cm langir.
Þá er sjóbleikjan mætt og krían var á fullu yfir ósasvæðinu við veiðar á sandsíli. Óli sagðist aldrei hafa séð svona margar kríur síðan veiðin hófst á ósasvæðinu. Mest veiddist á Granda, en fiskurinn var líka dreifður á svæðinu fyrir neðan allt út að Húnaós.