Veiðifélag Jökulsár á Dal og Veiðiþjónustan Strengir hafa gengið frá nýjum leigusamningi til ársins 2026. Samstarfið hefur gengið vel síðan það hófst árið 2007 þar sem lagt hefur verið í mikið uppbyggingarstarf hjá báðum aðilum.
Strengir hafa á þessu tímabili byggt fyrsta flokks veiðihús og aðstöðu fyrir veiðimenn ásamt því að sleppt hefur verið um milljón seiðum á vatnasvæðið allt með hliðarám meðtalið.
Veiðifélagið hefur komið að fiskvegagerð svo nú er liklega allt að 100 km langt vatnasvæði orðið fiskgegnd.
Jökla er orðin lengsta dragá landsins þar til Hálslón fer á yfirfall síðla sumars eða á haustin. Oft er það í byrjun september og veiðin færist þá í hliðarárnár Kaldá, Laxá, Fossá og Fögruhlíðará.
En stóru tíðindin eru sú að náttúruleg hrygning virðist vera að lukkast á þessu gríðarlanga vatnasvæði og villt seiði má finna í auknu magni árlega í rannsóknum sem Landsvirkjun kostar.