Laxveiðin byrjaði í Langá á Mýrum í morgun og fyrsti fiskurinn kom á land rúmlega sjö. Það var Sigurjón Guðlaugsson sem veiddi laxinn og það hefur hann gert nokkrum sinnum áður í ánni og reyndar víðar.
,,Sigurjón veiddi fyrsta fiskinn sem reyndist vera 90 hrygna,“ sagði Jógvan Hansen sem opnaði ána ásamt fleirum vöskum veiðimönnum.
,, Svo kom annar lax og einn slapp í löndun. Það virðist vera töluvert laxi kominn enda sáust laxar hér fyrir nokkru síðan,“ sagði Jógvan ennfremur.
Mynd. Sigurjón Guðlaugsson með fyrsta laxinn í Langá á Mýrum í morgun. Mynd Jógvan.