,,Já, þetta er maríulaxinn, þetta var mjög skemmtilegt,“ sagði Bergþór Böðvarsson Reykvíkingur ársins sem veiddi fyrsta laxinn i Elliðaánum í morgun. En mikið er af fiski í ánni og laxinn var snöggur að taka í fossinum.
Bergþór er þjálfari knattspyrnuliðsins FC Sækó og hefur aðstoðað marga sem hafa átt við geðfötlun að stríða i gegnum árin. Litlu seinna missti Dagur B. Eggertsson borgarstjóri lax á Breiðunni en náði öðrum á grillið skömmu seinna.
,,Þetta er bara frábært, flott veður og lax víða um ána,“ sagði Dagur B. Eggertsson nýkjörinn borgarstjóri.
,,Ég var að veiða maríulaxinn og þetta var virkilega skemmtilegt,“ sagði Gylfi Magnússon fyrrverandi ráðherra sem renndi fyrir lax í Fossinum og fékk einn 5 pund.
Mikið er að laxi í Elliðaánum þessa dagana , fossinn er smekk fullur og töluverður fiskur kominn upp eftir. Sumarið lítur vel út í Elliðaánum.
Myndir: Bergþór Böðvarsson og Dagur B. Eggertsson að gantast með laxinn sem eftir að hann kom á land. Á seinni myndinni er Gylfi Magnússon og Jón Þ . Einarsson með marilax Gylfa úr Fossinum. Ljósmyndir María Gunnarsdóttir.