,,Veiðin byrjaði frábærlega í Elliðaánum en það komu 20 laxar á fyrsta degi,“ sagði Ólafur Jóhannsson er við spurðum frétta af opnun Elliðaánna undir kvöld í gær.
,,Fyrir hádegi veiddust 11 laxar og eftir hádegi veiddust 9 laxar enda komið töluvert af fiski,“ sagði Ólafur ennfremur.
Fyrsti dagurinn lofar góðu upp á framhaldið enda mikið gengið á laxi og hann í nokkru mæli neðarlega í ána. Mest veiddist á maðkinn en eitthvað á flugu.
Mynd. Gylfi Magnússon og Jón Þ Einarsson með einn af fyrstu löxunum í ánni í gærmorgun, en 20 laxar veiddust á fyrsta degi.. Mynd G.Bender