Þrátt fyrir rigningu dag eftir dag og rennablaut grasið virðist ánamaðkurinn alls ekki koma upp. Veiðimenn sem við höfum heyrt í segja allir það sama,. Það er hvergi hægt að fá maðka þessa dagana.
,,Ég fékk nokkra á Selfossi, 40 stk en ekkert meira. Það er sama sagan allstaðar,“ sagði veiðimaður sem veiðir á maðk og hefur gaman af því.
,,Nei, við eigum lítinn maðk þessa dagana, fáum mjög lítið af honum,“ sagði Ingólfur Kolbeinsson í Vesturröst og það er orð að sönnu. Maðkurinn kemur bara alls ekki upp þrátt fyrir vætu dag eftir dag og viku eftir viku. Svona er bara staðan.