Hinn árlegi vorfagnaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur verður haldinn við höfuðstöðvar félagsins að Rafstöðvarvegi 14 á laugardaginn kemur, 9. júní, frá klukkan 13-16.
Allir sem mæta í dalinn fá happdrættismiða. Dregið verður úr þeim miðum sem verða á staðnum. Í vinning eru Veiðikort og stangir í opnun Elliðaánna.
Áhugasamir eru hvattir til að mæta með góða skapið og ekki væri verra ef allir gætu lagst á bæn og beðið um það blíðskaparveður sem við höfum verið blessuð með undanfarin þrjú ár.
Dagskráin er svohljóðandi: