,,Síðasta holl í Hvanndalsá landaði 7 löxum, allir nýgengnir með lús þannig að ljóst er að hann er að hellast inn,“ sagði Jóhann Davíð Snorrason um stöðuna í veiði hjá Laxá.
,,Leirvogsá er kominn yfir 100 laxa og eru dagarnir þar að gefa 6-10 laxa flestir. Eystri Rangá er búinn að vera góð upp á síðkastið með veiði flesta daga yfir 40 löxum, fallegir smálaxar og nokkrir lurkar í bland,“ sagði Jóhann Davíð ennfremur.
Mynd: Reyni M Sigmundsson með flottan lax úr Eystri Rangá fyrir skömmu.