,,Þetta var alveg meiriháttar, þarna getur maður veitt í soðið og þarf ekkert að sleppa,“ sagði veiðimaður sem var á Urrriðafossi í Þjórsá fyrir skömmu og veiddi vel en núna hafa veiðst 860 laxar þarna og veiðin er jöfn og góð. Það styttist óðfluga að áin fari í þúsund laxa.
Annar veiðimaður fór þarna fyrir skömmu og lét konuna veiða maríulaxinn, kannski svolítið hættulegur staður en hún stóð sig feiknavel og tók vel á fisknum sagði veiðimaðurinn, ánægður með konuna sína. Skömmu seinna landaði hún öðrum laxi.
Mynd. Fjör við Þjórsá fyrir skömmu en veiðin hefur gengið vel þar.