,,Við vorum að koma úr Stóru Laxá í Hreppum og það gekk vel. Við fengum fína veiði hjónin,“ sagði Tómas L Sigurðsson en nýjustu tölur voru að koma úr Stóru Laxá en svæði fjögur hefur gefið 44 laxa laxa, síðan svæði þrjú 12 laxa og svæði eitt og tvö165 laxa sem er bara flott veiði.
,,Á svæði eitt og tvö hefur verið hörkuveiði veiði síðustu daga og mikið af laxi að ganga. Þetta lítur vel út með sumarið í Stóru Laxá,“ sagði Tómas ennfremur.