Mjög góð veiði hefur verið í Svalbarðsá. Um 90 fiskar eru komnir á land og það aðeins á tvær til þrjár stangir. Veiðin er svipuð og á síðasta ári.
Í Svalbarðsá eru stórir og vænir fiskar og töluvert um smálax hefur verið að ganga upp í ána, sem veit á gott. Hollið sem var að klára var með um 25 fiska og er mynd að Júlíusi Jóhannssyni fasteignasala sem var í því holli.