,,Ég var að koma úr Korpu og fékk flottan lax, þetta er svo gaman en fiskinn veiddi ég í Berghlynum,“ sagði veiðimaðurinn Árni Elvar H Guðjohnsen en hann veiðir lax í hverjum veiðitúrnum á fætur öðrum.
Fyrr í sumar fékk hann lax í Elliðaánum og núna í Korpu. ,,Já, það er rétt lax í báðum ánum,“ sagði Árni ennfremur.
Mynd. Árni Elvar H. Guðjohnsen með lax úr Korpu.