Komnar eru nýjar veiðitölur á vef Landsambands Veiðifélaga. Samantektin er frá veiði í lok miðvikudags 25. júlí síðastliðinn. Veiðin gekk víðast hvar vel og sumstaðar mjög vel síðustu veiðiviku. Þrjár ár bættust við til viðbótar þeim er hafa farið yfir þúsund laxa markið þetta veiðitímabilið en það eru Ytri-Rangá, Eystri-Rangá og Miðfjarðará.
Enn trónir Þverá og Kjarará efst á listanum en þar hafa veiðst 1817 laxar. Þar hefur veiðin gengið mjög vel og veiddust alls 292 í liðinni veiðiviku. Á svipuðum tíma (26.07.17) í fyrra höfðu veiðst 1312 laxar og er því veiðin nú orðin 505 löxum meiri.
Samkvæmt heimildarmönnum þá er vatnsbúskapur góður og mikið af laxi á öllu svæðinu og af nógu að taka. Ekki er ólíklegt að við næstu samantekt verði veiðitalan komin yfir 2000 laxa og einungis spurning hvenær veiðin nær lokatölu veiðinnar í fyrra en þá var heildarveiðin 2060 laxar.