,,Frábær bleikjuveiði hefur verið á Kaldárhöfða í Þingvalla- og Úlfljótsvatni síðustu daga og engar smá kusur hafa fengist,“ segir Gunnar Örn Petersen i samtali er við spurðum um silungsveiði.
,,Í Úlfljótsvatni á milli lands og eyjar við Steingrímsstöð er mikið magn af bleikju. Veiðimaðurinn Robert Nowak sannaði það og gerði feikna veiði á boltableikjum nýverið og var sú stærsta 70 cm og algerlega kringlótt. Robert áætlaði hana allt að tíu pund,“ sagði Gunnar Örn ennfremur.
Veiðin hefur einnig verið góð í Þingvallavatni og þá sérstaklega í Skútavíkinni á milli veiðistaða fjögur og fimm. Kaldárhöfðinn er þekktur fyrir stórar sílableikjur, ólíkt þjóðgarðinum þar sem kuðungableikjan ræður ríkjum. Einnig er mikið af urriða á svæðinu en þeir stóru mæta yfirleitt í ágúst Þingvallavatnsmegin. Það eru þessir gömlu Sogsarar eins og þeir eru kallaðir.