Mokveiði hefur verið í Eystri Rangá að undanförnu og síðasta vika gaf yfir 700 laxa. Áin er komin yfir 2000 laxa og í öðru sæti yfir fengsælustu laxveiðiárnar.
,,Það er búið að vera mokveiði. Síðasta vika var í kringum 700 laxa,” sagði Jóhann Davíð Snorrason hjá Laxá er við spurðum frétta af veiðiskap í ánni.
Til þessa hefur mest veiðst í Þverá í Borgarfirði. Eystri Rangá, Miðfjarðará og Norðurá í Borgafirði koma í næstu sætum.
Mynd. Reynir M Sigmundsson með flottan lax úr Eystri Rangá fyrir skömmu.