,,Við fengum ágæta veiði en það er alltaf jafn gaman að veiða þarna,“ sagði Jógvan Hansen einn af þeim fjölmörgu sem hafa heimsótt Veiðivötn í sumar. En 14 þúsund fiskar hafa veiðst og meira af bleikju en urriða.
Sjóölduvatn hefur gefið mest af fisk eða um 3900 fiska en síðan kemur Litlisjór með 3383 fiska. Stærsti fiskurinn sem hefur veiðst í sumar er 12 pund en nokkrir stórir hafa sloppið.
Síðustu daga hefur aðeins dregið úr veiðinni á vötnunum.
Mynd. Veiðivötn.