,,Þetta meiriháttar en dóttir mín gerði sér lítið fyrir ogsetti í laxinn og landaði honum í Elliðaánum í Árbæjarhylnum,“ sagði Jón Ingi Sveinsson veiðimaður eftir að dóttir hans veiddi maríulaxinn sinn í Elliðaánum.
,,Fiskurinn stökk tvisvar sinnum og laxinn ætlaði ekki að gefast upp en hún landaði honum flott. Þetta var verulega gaman,“ sagði Jón Ingi ennfremur.
Elliðaárnar eru komnar í 833 laxar og það er ennþá nokkuð eftir af veiðitímanum. Fiskurinn er fyrir hendi, bara að fá hann til að taka. Það er heila málið.
Mynd. Vilborg Halla Jónsdóttir með maríulaxinn sinn úr Elliðaánum. Mynd Jón Ingi.