,,Við fórum í fjölskylduferð í Gufudalsá og sjóbleikjan er skemmtileg í ánni og mikill lærdómur fyrir krakkana í veiðiskapnum,“ sagði Egill Örn Petersen er við heyrðum í honum en hann var að koma úr Gufudalsá.
,,Göngur voru byrjaðar, en ég hef á tilfinningunni að þær hafi verið sterkari á sama tíma í fyrra. Bleikjurnar voru fremur vænar og minna var af smábleikjunni. Svo skemmtilega vildi til að tveimur löxum var landað í ferðinni, báðir maríulaxar sem Guðrún Lilja 12 ára og Jakob Felix 12 ára fengu. En þetta voru tveir af fjórum löxum sem veiðst hafa í ánni í sumar,“ sagði Egill Örn ennfremur.
Mynd: Guðrún Lilja Petersen, 12 ára með maríulax úr Stokksklettum (Mynd: Hildur Brynja Andrésdóttir)