,,Það er helvíti kalt hérna við Laxá í Aðaldal en ég er búinn að fá einn lax,“ sagði Bubbi Morthens en hann var við veiðar í uppáhalds ánni sinni Laxá í Aðaldal í morgun og svo verður hann með sína árlegu tónleika í Nesi í kvöld í kirkjunni.
,,Það er kalt en tónleikarnir verða í kvöld og það verða spiluð ný lög. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir,“ sagði Bubbi og hélt áfram að kasta flugunni á laxana í Laxá.
Mynd. Bubbi Mothens með lax úr Laxá í Aðaldal fyrr í sumar.