,,Það er kalt hérna við Litluá í Kelduhverfi og við erum hættir að veiða í dag,“ sagði Helgi Jóhannesson við Litluá í samtali við Veiðipressuna en veiðin hefur gengið ágætlega í ánni í sumar.
,,Við fengum tólf fiska í dag og tvo fiska eftir hádegi bara. Það var helvíti kalt hérna,“ sagði Helgi ennfremur.
Mynd. Fiskur kominn á land í Litluá í gærmorgun. Mynd Helgi.