,,Þetta er auðvitað ekki gott mál að þetta dragist svona. Ráðneytið hefur haft nógan tíma til að koma með hreindýrakvótann og á að vera búið að gera eitthvað fyrir löngu.
Kvótinn t.d. á rjúpunni á síðasta veiðitímabili kom ekki vel út að mínu mati,“ sagði veiðimaður sem var mikið niðri fyrir en hreindyra kvótinn átti að koma um mánaðamótin janúar/ febrúar en ekkert hefur skeð ennþá.
Það var ekki fyrr en veiðimenn fóru að skrifa um stöðuna á skotveiðispjallinu á facebook og spurðust fyrir um málið að eitthvað fór að gerast. Skotvís sendi frá sér tilkynningu á facebook til að vekja ráðherrann til umhugsunar og koma málinu hið minnsta af stað.
Það er mikið í húfi, veiðarnar sjálfar, vinna fyrir fólk í sveitum og annað í kringum þennan veiðiskap, en ráðherra rumskar varla.Þetta ætti nú þegar að liggja fyrir.
Hreindýrakvótinn ætti að liggja nú þegar fyrir. 12 þúsund veiðimenn bíða eftir að eitthvað gerist og að ráðherrann taki ákvörðun í málinu.