,,Það hafa líklega mætt á milli 40 og 50 manns og þetta gekk vel,“ sagði Elías Pétur Þórarinsson en hann stóð fyrir opnu húsi hjá Stangveiðifélagi Reykjavíkur á dögunum ásamt Guðna Hrafni Péturssyni en þeir eru í veiðifélaginu Villimönnum og veiða stjarnfræðilega mikið
.Þetta opna hús hjá Stangaveiðifélags Reykjavíkur er nauðsynlegt. Það veitir ekki af að fá fleiri unga veiðimenn til að koma og renna fyrir fisk. Dagskráin var skemmtilegt á opna húsinu, meira af slíku og að því verður stefnt í framtíðinni.
Mynd. Frá opnu húsi fyrir unga veiðimenn sem gekk sérlega og er líklega komið til að vera. Mynd Ingimundur Bergsson.