fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Pressan

Með fíkniefni, hnífa og járnkylfu

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 10. maí 2018 05:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á tíunda tímanum í gærkvöldi var akstur ökumanns stöðvaður í austurhluta Reykjavíkur. Ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og að hafa ekið sviptur ökuréttindum. Við leit á honum fundust meint fíkniefni og í bíl hans fundust ólöglegir hnífar og járnkylfa. Allt var þetta haldlagt.

Í gærkvöldi var tilkynnt um innbrot í bifreið í austurborginni. Í ljós kom að búið var að brjóta rúður í þremur bifreiðum en ekki er vitað hvort einhverju var stolið úr þeim.

Síðdegis í gær var ölvaður maður handtekinn í miðborginni en hann hafði verið á áreita, ógna og veitast að fólki.

Um klukkan hálf níu í gærkvöldi var tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir í húsagötu í Grafarvogi. Lögreglumenn stöðvuðu viðkomandi í akstri skömmu síðar. Hann er talinn hafa verið undir áhrifum fíkniefna auk þess sem hann er sviptur ökuréttindum. Hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöð.

Þrír ökumenn voru handteknir í gærkvöldi í nótt grunaðir um að vera undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra er einnig grunaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis. Einn þeirra reyndist vera sviptur ökuréttindum og einn þeirra var staðinn að akstri gegn rauðu ljósi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Pressan
Í gær

Lögð í einelti í menntaskóla – Nú vilja gerendurnir ólmir vinna hjá henni

Lögð í einelti í menntaskóla – Nú vilja gerendurnir ólmir vinna hjá henni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Megrunarlyf á að stöðva dauðaferli heilafruma – „Þetta lofar góðu“

Megrunarlyf á að stöðva dauðaferli heilafruma – „Þetta lofar góðu“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Laus úr fangelsi og brátt laus úr hjónabandi – Þetta var dropinn sem fyllti mælinn

Laus úr fangelsi og brátt laus úr hjónabandi – Þetta var dropinn sem fyllti mælinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Varpa fram athyglisverðri kenningu um hamfararigninguna í Dúbaí

Varpa fram athyglisverðri kenningu um hamfararigninguna í Dúbaí
Pressan
Fyrir 3 dögum

Við fórum heim til hans eftir stefnumótið – Síðan festist typpið hans í teinunum mínum

Við fórum heim til hans eftir stefnumótið – Síðan festist typpið hans í teinunum mínum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hinir einu sönnu síamstvíburar: Kvæntust systrum og eignuðust yfir 20 börn

Hinir einu sönnu síamstvíburar: Kvæntust systrum og eignuðust yfir 20 börn