Það tók um eina og hálfa klukkustund að slökkva eldinn. Slökkvilið notaði stigabíla til að bjarga fólki úr brennandi húsinu og einnig voru notaðir stórir uppblásnir púðar sem fólk lenti á þegar það hoppaði út. Slökkviliðsmenn eru enn að störfum í húsinu og fara nú um það allt til að fullvissa sig um að allir hafi komist út.