Það er betra að skilja rúmin eftir óumbúin á morgnana þegar farið er á fætur. En ef fólk vill að rykmaurar haldi veislu í rúmum þeirra þá er tilvalið að búa vel um og skapa þannig hið fullkomna umhverfi fyrir rykmaura. Fyrir B-manneskjurnar eru þetta góð tíðindi, enda erfitt að fara á fætur og ekki auðvelt að eiga líka að búa um rúmið.
Að meðaltali búa 1,5 milljónir rykmaura í hverju rúmi en þeir lifa af dauðri húð, sem dettur af okkur á nóttinni. Þegar við byltum okkur á nóttinni skiljum við eftir húð og svita á lökunum og þá bregðast rykmaurarnir hratt við og mæta að veisluhlaðborði.
Sá böggull fylgir þó veru þeirra í rúmum okkar að það sem þeir skila frá sér eftir veisluna, sem sagt úrgangurinn þeirra, truflar öndunarveg okkar og veldur ofnæmi og astma.
Ef við breiðum úr sængunum yfir rúmið á morgnana þá búum við til kjöraðstæður fyrir rykmaurana og húðina sem liggur á lakinu og þannig geta rykmaurarnir haldið veisluhöldum sínum áfram. Ef við tökum sængurnar úr rúminu nær ferskt loft og birta að leika um lakið, dýnuna og sængina og þannig fækkar rykmaurunum því án raka þá þorna þeir upp og drepast.