Hún segir að ef fólk er eitt þegar hundur ræðst á það sé best að standa kyrr. Ekki horfa í augu hundsins og gott er að snúa annarri hvorri síðunni að honum. Þetta segir hún að sendi hundinum róandi merki og hann slaki aðeins á. Fólk á síðan að bíða eftir að eigandi hundsins komi á staðinn. Ekki er gott að hrópa á hjálp því það getur stressað hundinn og æst hann enn frekar.
Ef þú ert með barn eða lítinn hund með þá skaltu lyfta þeim upp. Þú átt þá á hættu að verða bitin(n) en það er mikilvægt að muna að hundurinn ætlar væntanlega að ráðast á barnið eða hundinn þinn en ekki þig. Ef þú ert með stóran hund skaltu gera það sem þú getur til að vernda hann en ekki sleppa honum lausum, aldrei.
Ef það virkar ekki að standa kyrr og hundurinn bítur þig skaltu berjast við hann. Leggðu mat á hvort þú getir hlaupið undan honum en ef það er ekki hægt skaltu berjast við hann. Ekki reikna með að þú getir sparkað eða lamið í ákveðna líkamshluta hans. Það er enginn tími til þess. Þess í stað skaltu bara sparka eða lemja í hann þar sem hægt er hverju sinni.